Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1373/2021

Reglugerð um (10.) breytingu á reglugerð nr. 481/2017 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1235/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar fyrirkomulag á innflutningi lífrænna afurða frá þriðju löndum. - Brottfallin

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, 37. og 38. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/772 frá 10. maí 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/977 að því er varðar tímabundnar ráðstaf­anir í tengslum við eftirlit með framleiðslu lífrænt ræktaðra vara, einkum gildistímann. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 163/2021, frá 11. júní 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49, frá 22. júlí 2021, bls. 116.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1325 frá 10. ágúst 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/977 að því er varðar gildistíma tíma­bundinna ráðstafana í tengslum við eftirlit með framleiðslu lífrænt ræktaðra vara. Reglu­gerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 236/2021, frá 24. september 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71, frá 11. nóvember 2021, bls. 152.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í sam­ræmi við 4. og 5. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu, með síðari breytingum.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 7. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðar­framleiðslu.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaða­rframleiðslu.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. nóvember 2021.

 

Svandís Svavarsdóttir
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica