Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

923/2021

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 500/2021, um slátrun í litlum sauðfjár- og geitasláturhúsum. - Brottfallin

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist ný orðskýring í réttri stafrófsröð, svohljóðandi:

Biðsvæði aðkomufjár: Aðstaða fjár eða biðsvæði fyrir aflífun sem fé á jörð hins litla sauðfjár- og geitasláturhúss hefur aldrei aðgang að.

 

2. gr.

Á eftir 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar kemur ný málsgrein, svohljóðandi:

Með samþykki Matvælastofnunar er ábyrgðaraðila slátrunar heimilt að móttaka fé frá öðrum jörðum til framleiðslu í litlum sauðfjár- og geitasláturhúsum. Matvælastofnun leggur mat á sjúkdómastöðu hverju sinni og er heimilt að afturkalla heimildina ef breyting verður á sjúkdómastöðu eða brotið er gegn smitvörnum að mati stofnunarinnar. Óheimilt er að slátra fé úr öðru varnarhólfi eða frá jörðum með hærri sjúkdómastöðu en sú jörð sem hið litla sauðfjár- og geitasláturhús er staðsett á.

 

3. gr.

Á eftir 2. tl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar koma tveir nýir töluliðir og uppfærast töluliðanúmer ákvæðisins í samræmi við það.

  1. Fé sem móttekið er frá öðrum jörðum til framleiðslu í litlum sauðfjár- og geitasláturhúsum, sbr. 2. mgr. 4. gr., er skylt að koma fyrir á biðsvæði aðkomufjár.
  2. Óheimilt er að færa fé sem hefur verið fært á biðsvæði eða biðsvæði aðkomufjár annað en til slátrunar.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli, 29. gr. laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og 21. gr. laga nr. 55/2013, um velferð dýra. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 9. júlí 2021.

 

F. h. r.

Kristján Skarphéðinsson.

Linda Fanney Valgeirsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica