Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

9/2021

Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 481/2017 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1235/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar fyrirkomulag á innflutningi lífrænna afurða frá þriðju löndum. - Brottfallin

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 32. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2196 frá 17. desember 2020 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1235/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglu­gerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar fyrirkomulag á innflutningi lífrænna afurða frá þriðju löndum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sam­eigin­legu EES-nefndarinnar nr. 239/2020, frá 30. desember 2020.

 

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2196 sem nefnd er í 1. gr. er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

 

3. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í sam­ræmi við 4. og 5. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu, með síðari breytingum.

 

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 7. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbún­aðar­framleiðslu.

 

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðar­framleiðslu.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 7. janúar 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica