Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1144/2020

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 477/2017 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara. - Brottfallin

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 25. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/977 frá 7. júlí 2020 um undan­þágu frá reglugerðum (EB) nr. 889/2008 og (EB) nr. 1235/2008 að því er varðar eftir­lit með framleiðslu lífrænt ræktaðra vara vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Reglu­gerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 124/2020, frá 25. september 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 69, frá 29. október 2020, bls. 306.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðar­framleiðslu, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. nóvember 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica