834/2014
Reglugerð um matvæli sem eru ætluð ungbörnum og smábörnum, matvæli sem eru notuð í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi og þyngdarstjórnunarfæði í stað alls annars fæðis.
Breytingareglugerðir:
- 1507/2023 Reglugerð um (10.) breytingu á reglugerð nr. 834/2014 um matvæli sem eru ætluð ungbörnum og smábörnum, matvæli sem eru notuð í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi og þyngdarstjórnunarfæði í stað alls annars fæðis.
- 1250/2023 Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð nr. 834/2014 um matvæli sem eru ætluð ungbörnum og smábörnum, matvæli sem eru notuð í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi og þyngdarstjórnunarfæði í stað alls annars fæðis.
- 613/2023 Reglugerð um (8.) breytingu á reglugerð nr. 834/2014 um matvæli sem eru ætluð ungbörnum og smábörnum, matvæli sem eru notuð í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi og þyngdarstjórnunarfæði í stað alls annars fæðis.
- 333/2022 Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 834/2014 um matvæli sem eru ætluð ungbörnum og smábörnum, matvæli sem eru notuð í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi og þyngdarstjórnunarfæði í stað alls annars fæðis.
- 1283/2021 Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 834/2014 um matvæli sem eru ætluð ungbörnum og smábörnum, matvæli sem eru notuð í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi og þyngdarstjórnunarfæði í stað alls annars fæðis.
- 162/2020 Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 834/2014 um matvæli sem eru ætluð ungbörnum og smábörnum, matvæli sem eru notuð í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi og þyngdarstjórnunarfæði í stað alls annars fæðis.
- 1015/2018 Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 834/2014 um matvæli sem eru ætluð ungbörnum og smábörnum, matvæli sem eru notuð í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi og þyngdarstjórnunarfæði í stað alls annars fæðis.
- 361/2018 Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 834/2014 um matvæli sem ætluð eru ungbörnum og smábörnum, matvæli sem eru notuð í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi og þyngdarstjórnunarfæði í stað alls annars fæðis.
- 1044/2017 Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 834/2014 um matvæli sem ætluð eru ungbörnum og smábörnum, matvæli sem eru notuð í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi og þyngdarstjórnunarfæði í stað alls annars fæðis.
- 1052/2016 Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 834/2014 um matvæli sem eru ætluð ungbörnum og smábörnum, matvæli sem eru notuð í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi og þyngdarstjórnunarfæði í stað alls annars fæðis.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 222/2013, frá 14. desember 2013, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 609/2013 um matvæli sem eru ætluð ungbörnum og smábörnum, matvæli sem eru notuð í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi og þyngdarstjórnunarfæði í stað alls annars fæðis og um niðurfellingu á tilskipun ráðsins 92/52/EBE, tilskipunum framkvæmdastjórnarinnar 96/8/EB, 1999/21/EB, 2006/125/EB og 2006/141/EB, tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/39/EB og reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 41/2009 og (EB) nr. 953/2009. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 4, frá 23. janúar 2014, bls. 738.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
5. gr.
11., 16., 18. og 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 609/2013 öðlast þegar gildi, önnur ákvæði reglugerðarinnar öðlast gildi 20. júlí 2016. Á sama tíma, 20. júlí 2016, falla úr gildi reglugerð nr. 865/2010 um matvæli sem eru ætluð til sérstakra, næringarlegra nota (sérfæði) og reglugerð nr. 1177/2011 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 41/2009 um samsetningu og merkingu matvæla sem henta fólki með glútenóþol.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 9. september 2014.
|
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
|
Ólafur Friðriksson.
|
Eggert Ólafsson.
Reglugerðir sem falla brott: