Prentað þann 2. maí 2024
1097/2023
Reglugerð um bann við veiðum með fiskibotnvörpu út af Norðvesturlandi.
1. gr.
Markmið reglugerðar þessarar er að draga úr líkum á meðafla djúpkarfa við veiðar á grálúðu á svæði út af Norðvesturlandi.
2. gr.
Veiðar með fiskibotnvörpu eru óheimilar á skilgreindu svæði út af Norðvesturlandi (á norðaustanverðu Hampiðjutorgi).
Svæðið markast af línu sem dregin er á milli eftirfarandi hnita:
- 66°00,00'N - 27°00,00'V
- 65°43,00'N - 27°42,00'V
- 65°35,00'N - 27°42,00'V
- 65°43,00'N - 27°00,00'V
- 66°00,00'N - 27°00,00'V
3. gr.
Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum 15.-21. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 9. gr. og 14. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 11. október 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.