Fara beint í efnið

Prentað þann 23. apríl 2024

Stofnreglugerð

1040/2022

Reglugerð um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2244 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 með sértækum reglum um opinbert eftirlit að því er varðar aðferðir við sýnatöku vegna varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum, sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2244 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 með sértækum reglum um opinbert eftirlit að því er varðar aðferðir við sýnatöku vegna varnarefnaleifa í matvælum og fóðri. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 204/2022 frá 8. júlí 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53, frá 11. ágúst 2022, bls. 34.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli, lög nr. 54/1990 um innflutning dýra og lög nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

3. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum eða fangelsi. Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 93/1995 um matvæli, laga nr. 54/1990 um innflutning dýra og laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a. laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 25. ágúst 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.