Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Stofnreglugerð

829/2022

Reglugerð um heimild til flutnings á allt að 25% af aflamarki í djúpkarfa, grálúðu, gulllaxi og ufsa frá fiskveiðiárinu 2021/2022 yfir á fiskveiðiárið 2022/2023.

1. gr.

Heimilt er að flytja allt að 25% af aflamarki í djúpkarfa, grálúðu, gulllaxi og ufsa frá fiskveiðiárinu 2021/2022 yfir á fiskveiðiárið 2022/2023.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 16. gr. sbr. 3. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 7. júlí 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Agnar Bragi Bragason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.