Fara beint í efnið

Prentað þann 17. maí 2024

Stofnreglugerð

501/2024

Reglugerð um innleiðingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/384 um heppileika nafngifta á yrkjum af tegundum nytjaplantna í landbúnaði og grænmetistegunda og niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 637/2009.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í III. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/384 frá 3. mars 2021 um heppileika nafngifta á yrkjum af tegundum nytjaplantna í landbúnaði og grænmetistegunda og niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 637/2009. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 5/2024, frá 2. febrúar 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25, frá 21. mars 2024, bls. 110.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi og á sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 150/2011, um (21.) breytingu á reglugerð nr. 301/1995 um eftirlit með sáðvöru.

Matvælaráðuneytinu, 8. apríl 2024.

F. h. r.

Benedikt Árnason.

Emilía Madeleine Heenen.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.