Fara beint í efnið

Prentað þann 2. maí 2024

Stofnreglugerð

338/2023

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar matvælaráðherra tollkvótum samkvæmt II. kafla í stofnsáttmála Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA-ríkjanna) varðandi landbúnað, með síðari breytingum, á grundvelli 12. gr. tollalaga nr. 88/2005. Reglugerð þessi gildir um innflutning á afurðum upprunnum í Noregi og Sviss.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Tollskrárnr.: kg % kr./kg
ex0210.xxxx Nautgripakjöt - vöruliður 0210: 01.07.23-30.06.24 10.000 0 0
Kjöt af dýrum af nautgripakyni:
0210.2001 -- Beinlaust 0 0
0210.2009 -- Annars 0 0
0406.xxxx Ostur og ystingur: 01.07.23-30.06.24 15.000 0 0

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt ákvæðum búvörulaga nr. 99/1993. Tollkvótar eru auglýstir á vefsíðu matvælaráðuneytisins þar sem tilgreindir eru skilmálar og fram koma frekari upplýsingar um framkvæmd úthlutunarinnar.

4. gr.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt. Einnig er heimilt í stað ábyrgðaryfirlýsingar að greiða andvirði tollkvóta á reikning Fjársýslunnar og láta kvittun fylgja tilboðsgögnum. Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is

Tilboðsgjafi sá er fær úthlutað tollkvóta skal leysa hann til sín með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs.

Úthlutun er ekki framseljanleg.

5. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 1250/2019 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

6. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 5. mgr. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 30. júní 2024.

Matvælaráðuneytinu, 30. mars 2023.

Svandís Svavarsdóttir.

Elísabet Anna Jónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.