Fara beint í efnið

Prentað þann 2. maí 2024

Stofnreglugerð

236/2023

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1236 um reglur um beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 er varðar umsóknir um skráningu á landfræðilegum merkingum á brenndum drykkjum, andmælameðferð, breytingar á forskriftum fyrir afurðir, afturköllun skráningar, notkun tákns og eftirlit.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XXVII. kafla II. viðauka samningsins (brenndir drykkir), gilda hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Innflutningur og markaðssetning á brenndum drykkjum er heimil eftir því sem tilgreint er í XXVII. kafla II. viðauka samningsins.

2. gr.

Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1236 frá 12. maí 2021 um reglur um beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 er varðar umsóknir um skráningu á landfræðilegum merkingum á brenndum drykkjum, andmælameðferð, breytingar á forskriftum fyrir afurðir, afturköllun skráningar, notkun tákns og eftirlit. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 241/2022 frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 254.

3. gr.

Tollyfirvöld hafa eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við 132. gr. tollalaga nr. 88/2005.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar hafa eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli, sbr. 29. gr. laga nr. 130/2014, um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 40., sbr. 27. gr. laga um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu nr. 130/2014, með síðari breytingum, og 31. gr. a laga um matvæli nr. 93/1995, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 7. mars 2023.

Svandís Svavarsdóttir.

Margrét Björk Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.