Fara beint í efnið

Prentað þann 29. apríl 2024

Stofnreglugerð

30/2024

Reglugerð um veiðar íslenskra skipa á Norðuríshafsþorski innan efnahagslögsögu Noregs.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi tekur til framkvæmdar samnings milli Íslands, Noregs og Rússlands frá 15. maí 1999 um tiltekna þætti í samstarfi á sviði sjávarútvegs ásamt tvíhliða bókunum við hann frá sama degi milli Íslands og Noregs annars vegar og Íslands og Rússlands hins vegar.

Íslenskum skipum er óheimilt að stunda loðnuveiðar í Barentshafi.

Veiðisvæði innan efnahagslögsögu Noregs afmarkast sem svæðið norðan við 62°00ʹ N og utan 12 sjómílna frá grunnlínum.

2. gr. Leyfi til veiða.

Allar veiðar á Norðuríshafsþorski innan efnahagslögsögu Noregs eru háðar sérstöku leyfi Fiskistofu. Veiðar á Norðuríshafsþorski eru aðeins heimilar innan efnahagslögsögu Noregs og miðast leyfi Fiskistofu við nýtingu þessara veiðiheimilda. Aðeins þau skip, sem hafa aflamark í Norðuríshafsþorski, á viðkomandi fiskveiðiári, eiga kost á veiðileyfi, samkvæmt reglugerð þessari.

3. gr. Aflamark.

Fiskistofa skal á hverju almanaksári úthluta aflamarki í Norðuríshafsþorski til einstakra skipa í efnahagslögsögu Noregs. Aflamark einstaks skips á svæðinu ræðst af aflahlutdeild þess.

4. gr. Heimill meðafli.

Við veiðar á Norðuríshafsþorski er heimilt að hafa allt að 30% meðafla af öðrum tegundum. Þó má karfi ekki vera nema 20% í hverju togi og 20% af lönduðum þorskafla og grálúða má ekki vera meiri en 12% í hverju togi og ekki meiri en 7% af lönduðum þorskafla.

Í hverri veiðiferð innan efnahagslögsögu Noregs, skal afli af öðrum tegundum en í Norðuríshafsþorski, ekki vera meiri samtals en sem nemur 30% af þorskafla, miðað við afla upp úr sjó.

5. gr. Eftirlit og takmarkanir á fjölda skipa.

Um veiðar í efnahagslögsögu Noregs fer samkvæmt reglum, sem settar eru af stjórnvöldum í Noregi, m.a. varðandi eftirlitsmenn um borð í veiðiskipum, svæðalokanir, möskvastærðir og tilkynningar.

Ekki skulu fleiri en 15 íslensk skip stunda veiðar samtímis innan efnahagslögsögu Noregs.

6. gr. Fjarskiptabúnaður.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda veiðar í efnahagslögsögu Noregs sem búin eru fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu á klukkustundar fresti. Óheimilt er að hefja veiðiferð í efnahagslögsögu Noregs, fyrr en starfsmenn eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest til skipstjóra að ofangreindur búnaður starfi eðlilega.

Ef búnaður til sjálfvirkra sendinga, sbr. 3. mgr., bilar, skal gert við hann við komu í næstu höfn. Þar til búnaðinum verður komið í lag skal senda á annan hátt upplýsingar á 4 klukkustunda fresti til eftirlitsstöðvarinnar.

7. gr. Framsal aflahlutdeildar og flutningur.

Heimilt er að framselja aflahlutdeild og aflamark í Norðuríshafsþorski milli íslenskra fiskiskipa, samkvæmt 12. gr. og 15. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.

Óheimilt er að veiða umfram aflamark og óheimilt að flytja óveitt aflamark á næsta ár í Norðuríshafsþorski.

8. gr. Landanir á Íslandi.

Að fengnu leyfi Fiskistofu er heimilt í sömu veiðiferð að stunda veiðar á Norðuríshafsþorski og veiðar innan íslenskrar efnahagslögsögu að því tilskildu að öllum afla þeirrar veiðiferðar sé landað í íslenskri höfn. Fyrir upphaf hverrar veiðiferðar skal skipstjóri tilkynna sérstaklega til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu hvenær veiðiferð hefst. Þá skal tilkynna til eftirlitsstöðvarinnar þegar veiðar hefjast innan efnahagslögsögu Noregs og þegar þeim lýkur hverju sinni. Þar skal koma fram áætlað magn og samsetning afla um borð, miðað við afla upp úr sjó og áætlaður löndunarstaður og löndunartími. Um tilkynningar varðandi veiðar innan efnahagslögsögu Noregs fer samkvæmt reglum norskra stjórnvalda um rafræna afladagbók.

9. gr. Landanir í Noregi.

Heimilt er, að fengnu leyfi Fiskistofu, að landa afla í höfnum í Noregi, enda séu skilyrði Fiskistofu um eftirlit með vigtun og skýrsluskil uppfyllt. Sækja skal um leyfi til löndunar í norskum höfnum til Fiskistofu og skal skipstjóri í umsókn tilgreina hvar hann hyggst landa aflanum ásamt áætluðu magni. Áætli skip komu til hafnar samningsaðila NEAFC með afla af samningssvæði NEAFC, hvort heldur til löndunar, umskipunar eða til að leita þjónustu að öðru leyti, skal tilkynna þar til bæru yfirvaldi í viðkomandi ríki um komu skips til hafnar innan tiltekins frests sem ákveðinn er af hafnríkinu í samræmi við reglur NEAFC um hafnríkiseftirlit og framkvæmd þess. Tilkynningar skal senda með rafrænum hætti á heimasíðu NEAFC (https://psc.neafc.org).

Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri senda Fiskistofu staðfest afrit af vigtarnótu. Reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla á við að öðru leyti.

Þegar afli er unninn um borð í veiðiskipi skal við útreikning á veiddum afla ekki miða við mælda nýtingu um borð í veiðiskipi heldur nýtingarstuðla, sem gefnir eru út af viðkomandi stjórnvöldum í Noregi.

10. gr. Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari skulu varða viðurlögum samkvæmt III. kafla laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands.

11. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 3.-8. gr. og 19. gr. laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1460/2022, um veiðar íslenskra skipa á Norðuríshafsþorski árið 2023 innan efnahagslögsögu Noregs.

Matvælaráðuneytinu, 18. janúar 2024.

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.