Landbúnaðarráðuneyti

478/2007

Reglugerð um úthlutun á opnum tollkvótum á hreindýrakjöti og nautahakki. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. viðaukum III A og VI A við tollalög nr. 88/2005 með síðari breytingum í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, vörumagn, verð- og magntoll:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

kg

%

kr./kg

Tollskrárnr:

Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst

0202.3001

Hakkað

01.07.07- 30.06.08

ótilgreint

0

306

Annað kjöt, fryst - vöruliður 0208:

Tollskrárnr:

Hreindýrakjöt

0208.9007

Beinlaust hreindýrakjöt, fryst

01.07.07- 30.06.08

ótilgreint

0

464

0208.9008

Hreindýrakjöt með beini, fryst

01.07.07- 30.06.08

ótilgreint

0

464

Úr tollskrárnr.:

0208.9008

Hreindýrakjöt í heilum og hálfum skrokkum

01.07.07- 30.06.08

ótilgreint

0

0

3. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 509/2004 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr., 65. gr. A og 87. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 30. júní 2008.

Landbúnaðarráðuneytinu, 31. maí 2007.

F. h. r.

Ólafur Friðriksson.

Atli Már Ingólfsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica