Landbúnaðarráðuneyti

1032/2005

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á soðnum eggjum og eggjarauðum. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar landbúnaðarráðherra tollkvótum samkvæmt viðaukum III A og IV A, við tollalög nr. 55/1987, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Úr tollnúmeri:

kg

%

kr./kg

0408.1901

Gerilsneyddar eggjarauður með 7% saltinnihaldi í ≥ 5 kg umbúðum

01.01 - 31.12.06

ótilgr.

0

39

0408.9901

Soðin egg í ≥ 10 kg umbúðum

01.01 - 31.12.06

ótilgr.

0

91

Tímabil það sem tilgreint er miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabils. Hafi vara hlotið bráðabirgðatollafgreiðslu, skal þó miða við dagsetningu hennar.

3. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 509/2004, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr., 65. gr. A og 87. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2006.

Landbúnaðarráðuneytinu, 16. nóvember 2005.

F. h. r.

Ólafur Friðriksson.

Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica