Landbúnaðarráðuneyti

1037/2005

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á frjóeggjum og mysudufti. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar landbúnaðarráðherra tollkvótum samkvæmt viðaukum III A og IV A við tollalög, nr. 55/1987, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Tollnúmer:

kg

%

kr./kg

0407.0001

Frjóegg (af tegund Gallus domesticus)

01.01 - 31.12.06

ótilgr.

0

0

0404.9000

Annað (mysuduft)

01.01 - 31.12.06

ótilgr.

0

5

Tímabil þau sem tilgreind eru miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabils. Hafi vara hlotið bráðabirgðatollafgreiðslu, skal þó miða við dagsetningu hennar.

3. gr.

Við innflutning á frjóeggjum (0407.0001) skal gætt ákvæða laga nr. 54/1990 um innflutning dýra, með síðari breytingum.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr., 65. gr. A og 87. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2006.

Landbúnaðarráðuneytinu, 16. nóvember 2005.

F. h. r.

Ólafur Friðriksson.

Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica