Landbúnaðarráðuneyti

930/2004

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á soðnum eggjum og eggjarauðum. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. viðaukum III A og IV A, við tollalög nr. 55/1987, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.


2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara
Tímabil
Vörumagn
Verðtollur
Magntollur
Úr tollnúmeri:
kg
%
kr./kg
0408.1901 Gerilsneyddar eggjarauður
með 7% saltinnihaldi í
³5 kg umbúðum
01.01 - 31.12.05
ótilgr.
0
39
0408.9901 Soðin egg í ³10 kg
umbúðum
01.01 - 31.12.05
ótilgr.
0
91


Tímabil þau sem tilgreind eru miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabils. Hafi vara hlotið bráðabirgðatollafgreiðslu, skal þó miða við dagsetningu hennar.


3. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt sé ákvæði reglugerðar nr. 416/2002, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.


4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.


5. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 65. gr., 65. gr. A og 87. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2005.


Landbúnaðarráðuneytinu, 19. nóvember 2004.

F. h. r.
Ólafur Friðriksson.
Atli Már Ingólfsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica