Landbúnaðarráðuneyti

300/2004

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 301/1995 um eftirlit með sáðvöru.

1. gr.

1. ml. 1. mgr. 26. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Til að standa straum af kostnaði við framkvæmd aðfangaeftirlitsins skal innheimta eftirlitsgjald sem skal vera 3,1% af innflutningsverði (c.i.f.) sáðvöru, sem innheimt skal við tollafgreiðslu vörunnar og 3,1% af söluverði innlendrar sáðvöru (án vsk) sem innheimt skal tvisvar á ári samkvæmt söluskýrslum framleiðenda, á eyðublöðum aðfangaeftirlitsins.


1. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og öðlast þegar gildi.


Landbúnaðarráðuneytinu, 1. apríl 2004.

Guðni Ágústsson.
Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica