Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. viðaukum III B og IV B við tollalög númer 55/1987, með síðari breytingum í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.
Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:
Vara |
Tímabil
|
Vörumagn
|
Verðtollur
|
Magntollur
|
|
Tollnúmer: |
stk.
|
%
|
kr./stk.
|
||
0602.2000 | Tré, runnar og búskar, einnig ágrætt sem ber æta ávexti |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
0602.3000 | Alparósir og glóðarrósir, einnig ágræddar |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
0602.4000 | Rósir, einnig ágræddar |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
Annað: | |||||
0602.9030 | Matjurta- og jarðarberjaplöntur |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
Annað: Útiplöntur: - Tré, runnar og búskar | |||||
0602.9041 | Skógartré |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
Annað: | |||||
0602.9045 | Græðlingar með rót og ungplöntur |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
0602.9049 | Annars |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
Aðrar útiplöntur: | |||||
0602.9051 | Fjölærar jurtkenndar plöntur |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
Inniplöntur: | |||||
0602.9070 | Græðlingar með rót og ungplöntur ekki kaktusar og þykkblöðungar |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
Annað: | |||||
0602.9091 | Kaktusar og þykkblöðungar |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
0602.9092 | Pottaplöntur af ættkvíslinni Bromilea |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
0602.9093 | Plönturnar Erica Gracilis og Calluna |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
0602.9094 | Plöntur af ættkvíslum brönugrasa "orchids" |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
0602.9095 | Aðrar pottaplöntur til og með 1 metra á hæð |
01.01.-30.06.04
|
3.400
|
30
|
0
|
0602.9099 | Annars (pottaplöntur yfir 1 metri á hæð) |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
Nýtt: | |||||
0603.1002 | Innflutningur á öðrum tíma (nellikur, lokaskegg o.fl.) |
01.05.-30.11.04
|
ótilgr.
|
15
|
48
|
0603.1003 | Ættkvíslirnar Prote, Bankasía o.fl. |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
0603.1004 | Afskornar greinar með berjum og ávöxtum |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
0603.1005 | Blóm af ættkvíslum brönugrasa "orchids" |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
0603.1006 | Forsythia (páskagreinar) |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
0603.1009 | Annars (afskorin blóm) |
01.01.-30.06.04
|
175.000
|
30
|
0
|
0603.9000 | Annað (þurrkuð blóm) |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
Annað: | |||||
0604.9101 | Jólatré, án rótar |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
0604.9102 | Jólatrésgreinar |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
0604.9109 | Annað |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
0604.9900 | Annars |
01.01.-31.12.04
|
ótilgr.
|
30
|
0
|
Við innflutning á vörum sem falla undir þau tollnúmer þar sem vörumagn er ekki tilgreint skal gilda sá verð- og/eða magntollur sem tilgreindur er í 1. mgr. yfir tilgreint tímabil. Fyrir þau tollnúmer sem vörumagn er tilgreint gildir tiltekinn verð- og/eða magntollur skv. útgefnum tollkvótum.
Tímabil þau sem tilgreind eru miðast við tollfgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollfgreiðslu lokið innan tímabils. Hafi vara hlotið bráðabirgðatollafgreiðslu skal þó miða við dagsetningu hennar.
Tollkvótum er úthlutað skv. auglýsingu landbúnaðarráðuneytisins þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar. Úthlutun er ekki framseljanleg. Við úthlutun á tollkvótum sem fellur undir tollnúmer þar sem vörumagn er tilgreint skal auglýsa eftir umsóknum um tollkvóta.
Verði umsóknir um tollkvóta í þeim tollnúmerum þar sem magn er tilgreint meiri en það magn sem auglýst er skal leita tilboða í tollkvóta.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 189/1990, um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt 65. gr. og 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.
Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 65. gr., 65. gr. A og 87. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2004.