Landbúnaðarráðuneyti

376/2003

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á unnum kjötvörum. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. viðauka III A við tollalög númer 55/1987 með síðari breytingum í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.


2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara
Tímabil
Vörumagn
Verðtollur
Magntollur
kg
%
kr./kg
Tollnúmer: Kjötvörur úr vörulið 1602:
86.000
1602.1001 Blönduð matv. meira en 60% af kjöti
01.07.03 - 30.06.04
-
0
88
1602.1009 Meira en 20% til og með 60%
01.07.03 - 30.06.04
-
0
88
1602.2011 Meira en 60% af dýralifur
01.07.03 - 30.06.04
-
0
123
1602.2012 Meira en 20% til og með 60% af dýralifur
01.07.03 - 30.06.04
-
0
123
1602.2019 Annað
01.07.03 - 30.06.04
-
0
44
1602.2021 Annað, meira en 60% af dýralifur
01.07.03 - 30.06.04
-
0
123
1602.2022 Annað, meira en 20% til og með 60%
01.07.03 - 30.06.04
-
0
78
1602.2029 Annað
01.07.03 - 30.06.04
-
0
26
1602.3101 Úr kalkúnum meira en 60%
01.07.03 - 30.06.04
-
0
214
1602.3102 Úr kalkúnum meira en 20% til og með 60%
01.07.03 - 30.06.04
-
0
214
1602.3109 Annað
01.07.03 - 30.06.04
-
0
115
1602.3201 Úr hænsnum meira en 60%
01.07.03 - 30.06.04
-
0
214
1602.3202 Úr hænsnum meira en 20%, til og með 60%
01.07.03 - 30.06.04
-
0
214
1602.3209 Annað
01.07.03 - 30.06.04
-
0
115
1602.3901 Annað meira en 60% úr alifuglum
01.07.03 - 30.06.04
-
0
214
1602.3902 Annað 20% til og með 60% úr alifuglum
01.07.03 - 30.06.04
-
0
214
1602.3909 Annað
01.07.03 - 30.06.04
-
0
115
1602.4101 Úr svínum meira en 60%, læri og lærissneiðar
01.07.03 - 30.06.04
-
0
550
1602.4102 Meira en 20% til og með 60%, af kjöti
01.07.03 - 30.06.04
-
0
343
1602.4109 Annað
01.07.03 - 30.06.04
-
0
115
1602.4201 Meira en 60% af kjöti, bógur og bógsneiðar
01.07.03 - 30.06.04
-
0
412
1602.4202 Meira en 20% til og með 60% af kjöti
01.07.03 - 30.06.04
-
0
247
1602.4209 Annað
01.07.03 - 30.06.04
-
0
83
1602.4901 Annað meira en 60% af kjöti, blöndur
01.07.03 - 30.06.04
-
0
511
1602.4902 Annað meira en 20% til og með 60% af kjöti
01.07.03 - 30.06.04
-
0
307
1602.4909 Annað
01.07.03 - 30.06.04
-
0
102
1602.5001 Meira en 60% kjöt úr nautgripum
01.07.03 - 30.06.04
-
0
382
1602.5002 Meira en 20% til og með 60% úr kjöti
01.07.03 - 30.06.04
-
0
304
1602.5009 Annað
01.07.03 - 30.06.04
-
0
102
1602.9011 Úr dilkakjöti meira en 60% af kjöti
01.07.03 - 30.06.04
-
0
442
1602.9012 Meira en 20% til og með 60% af kjöti
01.07.03 - 30.06.04
-
0
265
1602.9019 Annað
01.07.03 - 30.06.04
-
0
89
1602.9021 Annað, úr öðru kjöti meira en 60%
01.07.03 - 30.06.04
-
0
442
1602.9022 Annað, meira en 20% til og með 60% af kjöti
01.07.03 - 30.06.04
-
0
265
1602.9029 Annað
01.07.03 - 30.06.04
-
0
89



Tímabil þau sem tilgreind eru miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabils. Hafi vara hlotið bráðabirgðatollafgreiðslu skal þó miða við dagsetningu hennar.


3. gr.

Tollkvótum er úthlutað skv. auglýsingu landbúnaðarráðuneytisins þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar. Heimilt er að úthluta tollkvótum í einu lagi eða skipta úthlutun niður á gildistíma reglugerðarinnar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 416/2002, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.


4. gr.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vörunnar.

Skulu tilboð ráða úthlutun, þó skal að lágmarki úthluta því magni sem hér greinir miðað við tímabil sem getið er um í 2. gr. í eftirtöldum vöruliðum sé um það sótt:

vöruliðir 1602.10XX 2.600 kg
vöruliðir 1602.20XX 2.600 kg
vöruliðir 1602.3XXX 16.600 kg
vöruliðir 1602.4XXX 13.200 kg
vöruliðir 1602.50XX 4.600 kg
vöruliðir 1602.90XX 3.400 kg



5. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum á henni skal farið að hætti opinberra mála.


6. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 65 gr. og 87. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi og gildir til 1. júlí 2004.


Landbúnaðarráðuneytinu, 15. maí 2003.

F. h. r.
Guðmundur B. Helgason.
Atli Már Ingólfsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica