Landbúnaðarráðuneyti

472/2001

Reglugerð um greiðslumark mjólkur á lögbýlum og beingreiðslur til bænda verðlagsárið 2001-2002. - Brottfallin

472/2001

REGLUGERÐ
um greiðslumark mjólkur á lögbýlum og
beingreiðslur til bænda verðlagsárið 2001-2002.

1. gr.
Heildargreiðslumark og greiðslumark lögbýla.

Heildargreiðslumark til framleiðslu mjólkur verðlagsárið 2001-2002 skal vera 104 milljónir lítra og skiptist í greiðslumark lögbýla. Greiðslumark lögbýla reiknast í lítrum mjólkur og skiptist hlutfallslega milli lögbýla á sama hátt og greiðslumark til framleiðslu mjólkur á verðlagsárinu 2000-2001.


2. gr.
Aðilaskipti að greiðslumarki.

Heimil eru aðilaskipti að greiðslumarki á milli lögbýla. Sé ábúandi lögbýlis annar en eigandi/eigendur þess þarf samþykki beggja/allra fyrir ráðstöfun greiðslumarks frá lögbýli. Leiguliða er heimilt að kaupa greiðslumark á lögbýli og skal það sérstaklega skráð á nafn hans. Leiguliða er heimilt að selja sérskráð greiðslumark án samþykkis jarðareiganda. Þó skal jarðareigandi eiga forkaupsrétt við ábúðarlok leiguliða á því markaðsverði sem síðast liggur fyrir. skv. könnun sem Bændasamtök Íslands annast. Aðilaskipti greiðslumarks skulu tilkynnt á þar til gerðum eyðublöðum sem Bændasamtök Íslands láta í té og liggja frammi á skrifstofum búnaðarsambanda. Með tilkynningu um aðilaskipti að greiðslumarki skal fylgja staðfesting um eignarhald að lögbýlinu. Þá skal seljandi leggja fram þinglýsingarvottorð fyrir það lögbýli sem selt er frá og skriflegt samþykki allra veðhafa fyrir sölunni. Tilkynningar um aðilaskipti fyrir verðlagsárið 2001-2002 skulu hafa borist Bændasamtökum Íslands í síðasta lagi 20. júní 2002 til að þau taki gildi á verðlagsárinu. Aðilaskiptin taka fyrst gildi þegar staðfesting Bændasamtaka Íslands liggur fyrir.


3. gr.
Nýting greiðslumarks lögbýla.

Afurðastöð skal greiða framleiðanda lágmarksverð fyrir mjólk sem miðast við 1. flokks mjólk með skilgreindu efnainnihaldi. Fyrir aðra mjólk sem ekki stenst kröfur sem 1. flokks mjólk greiðir afurðastöð verð allt niður að leyfilegum afföllum frá verði 1. flokks mjólkur.

Greiðslutilhögun vegna framleiðslu umfram greiðslumark skal vera með eftirfarandi hætti:

a) Fyrstu 4% sem framleiðandi framleiðir umfram greiðslumark sitt hafa forgang að greiðslum frá afurðastöð sé ónotað greiðslumark þá fyrir hendi á viðkomandi mjólkursamlagssvæði.
b) Verði enn ónotað greiðslumark á samlagssvæði gengur það til annarra samlagssvæða til nýtingar allt að 104% greiðslumarks.
c) Verði enn ónotað greiðslumark, greiðist hlutfallslega á það sem er umfram 104% greiðslumarks á landinu öllu, enda liggi fyrir heimild Bændasamtakanna, sbr. 3. mgr.

Framleiðsla, umfram það magn sem unnt er að greiða fyrir skv. stafliðum a-c að ofan, skal markaðsfærð erlendis, þó getur framkvæmdanefnd búvörusamninga heimilað sölu hennar innanlands ef gengið hefur á birgðir þannig að fyrirsjáanlegur sé skortur á mjólk.


4. gr.
Brottfall og geymsla greiðslumarks.
Greiðslumark lögbýla sem ekki hefur verið nýtt til framleiðslu að neinu leyti í full tvö verðlagsár fellur niður, enda hafi Bændasamtök Íslands tilkynnt eiganda lögbýlis um rétt til sölu eða geymslu greiðslumarksins. Heimilt er framleiðanda að leggja greiðslumark lögbýlisins inn til geymslu lengst til 31. ágúst 2005 og sætir það þá ekki sömu breytingum og annað greiðslumark.


5. gr.
Beingreiðslur.

Beingreiðsla er framlag úr ríkissjóði til framleiðanda mjólkur og skal svara til 47,1% af lágmarksverði mjólkur samkvæmt verðlagsgrundvelli á innleggsdegi. Dreifing beingreiðslna og fráviksmörk skulu vera með eftirfarandi hætti:

A: 53,5% skal greiða óháð framleiðslu, að því tilskildu að framleiðsla lögbýlisins sé a.m.k. 85% greiðslumarks á tímabilinu. Greiða skal 1. hvers mánaðar, 1/12 hluta, í fyrsta sinn 1. september 2001.
B: 31,5% skal greiða eftir framleiðslu allt að greiðslumarki hvers framleiðanda. Greiða skal 1. hvers mánaðar fyrir innlegg næstsíðasta mánaðar, í fyrsta sinn 1. nóvember 2001.
C: 15,0% skal ráðstafað með eftirfarandi hætti: greiða skal 4/5 hluta á innvegið magn mjólkur í mánuðunum nóvember til og með febrúar. Finna skal meðalgreiðslu fyrir hvern dag í þessum mánuðum að teknu tilliti til breytinga á lágmarksverði mjólkur og þeirri fjárhæð sem þannig er fundin skal deilt á innvegið magn mjólkur í hverjum mánuði fyrir sig. Greiða skal 1. hvers mánaðar fyrir innlegg næstsíðasta mánaðar. Á sama hátt skal greiða 1/15 hluta fyrir innvegna mjólk í júlí og 2/15 hluta fyrir innvegna mjólk í ágúst.

Að því marki sem beingreiðslur ganga ekki út eftir uppgjör innan greiðslumarks skal greitt samkvæmt stafliðum A og B hlutfallslega út á framleiðslu umfram greiðslumark hvers lögbýlis þó þannig að fyrstu 4% njóti forgangs, sbr. greiðslur afurðastöðva skv. 3. gr.


6. gr.
Handhafi beingreiðslna.
Beingreiðslur greiðast ábúanda á lögbýli. Á hverju lögbýli skal aðeins einn framleiðandi vera skráður handhafi. Þó er heimilt, þegar um fleiri sjálfstæða rekstraraðila er að ræða sem standa að búinu, að skrá þá sérstaklega. Sjálfstæður rekstraraðili telst sá einn sem hefur sjálfstætt virðisaukaskattsuppgjör. Tilkynna skal Bændasamtökum Íslands allar breytingar á því hver eigi að vera handhafi beingreiðslna. Séu handhafar tveir eða fleiri, skal gefa upp hlutfallslega skiptingu beingreiðslna. Jafnframt skulu handhafar beingreiðslna tilgreina sérstakan reikning í bönkum eða öðrum viðskiptastofnunum, sem greiðslur skulu lagðar inn á.


7. gr.
Uppgjör beingreiðslna.
Sjái handhafi beingreiðslu fram á að nýting greiðslumarks gefi ekki rétt til a.m.k. 85% af beingreiðslum verðlagsársins, ber honum að tilkynna það Bændasamtökum Íslands, sem þá skulu haga beingreiðslum í samræmi við áætlaða nýtingu. Komi samt fram við lok verðlagsárs, að ofgreitt hafi verið, ber handhafa beingreiðslna að endurgreiða mismuninn samkvæmt reikningi.


8. gr.
Útreikningur á greiðslumarki lögbýla.
Bændasamtök Íslands reikna út greiðslumark til framleiðslu mjólkur og halda skrá yfir greiðslumark lögbýla og handhafa réttar til beingreiðslna og láta afurðastöðvum og búnaðarsamböndum í té eintak af henni fyrir starfssvæði þeirra. Bændasamtök Íslands afla upplýsinga og annast útreikninga vegna framkvæmdar þessarar reglugerðar og hafa eftirlit með uppgjöri afurðastöðva við framleiðendur. Afurðastöðvum og framleiðendum er skylt að láta Bændasamtökum Íslands í té allar þær upplýsingar sem að gagni geta komið við störf Bændasamtakanna og þær geta veitt.


9. gr.
Tilkynningar um greiðslumark lögbýla.
Bændasamtök Íslands skulu tilkynna framleiðendum um greiðslumark lögbýlisins. Framleiðendur eiga þess kost að gera athugasemdir við það og skulu þær berast Bændasamtökum Íslands innan 20 daga frá dagsetningu tilkynningar um greiðslumark, ella gildir það fyrir verðlagsárið. Bændasamtök Íslands endurskoða útreikninga, sem athugasemdir eru gerðar við og tilkynna framleiðanda niðurstöðu sína. Berist Bændasamtökum Íslands ekki athugasemdir við þá niðurstöðu innan 25 daga frá dagsetningu úrskurðarins, gildir hann fyrir hlutaðeigandi verðlagsár. Uni viðkomandi framleiðandi ekki þeirri niðurstöðu, hefur hann rétt til þess að skjóta ágreiningnum með rökstuddri kæru til úrskurðarnefndar, sbr. 10. gr.


10. gr.
Úrskurðarnefnd.
Ágreiningi um ákvörðun á greiðslumarki lögbýlis, skráningu á greiðslumarki og rétt til beinna greiðslna, er heimilt að skjóta til úrskurðarnefndar, sem starfar skv. lögum nr. 99/1993. Úrskurði nefndarinnar, sem skal liggja fyrir innan 45 daga frá því erindi berst henni, verður ekki skotið til ráðherra.


11. gr.
Viðurlög og gildistaka.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt 70. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Jafnframt er reglugerð nr. 495/2000 felld úr gildi.


Landbúnaðarráðuneytinu, 12. júní 2001.

F. h. r.
Guðmundur Sigþórsson.
Sigríður Norðmann.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica