Landbúnaðarráðuneyti

433/2001

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á nautgripa-, svína-, alifugla- og hreindýrakjöti. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. viðaukum III A og VI A við tollalög númer 55/1987 með síðari breytingum í samræmi við tillögur nefndar skv. 75. gr. laga nr. 99/1993.


2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara Tímabil
Vörumagn
Verðtollur
Magntollur
kg
%
kr./kg
Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst -
Tollnúmer: vöruliðir 0202 og 0210:
95.000
0202.3002 Lundir 01.07.01 - 30.06.02
0
665
0202.3003 Hryggvöðvar 01.07.01 - 30.06.02
0
665
0202.3004 Vöðvar af læri 01.07.01 - 30.06.02
0
665
Kjöt af dýrum af nautgripakyni, saltað,
Tollnúmer: þurrkað eða reykt:
0210.2001 Beinlaust 01.07.01 - 30.06.02
0
405
Svínakjöt - vöruliðir 0203 og 0210:
64.000
Tollnúmer: Svínakjöt, fryst:
0203.2903 Hakkað 01.07.01 - 30.06.02
0
539
0203.2904 Lundir 01.07.01 - 30.06.02
0
539
0203.2905 Hryggvöðvar 01.07.01 - 30.06.02
0
539
0203.2906 Vöðvar af læri 01.07.01 - 30.06.02
0
539
0203.2909 Annað 01.07.01 - 30.06.02
0
539
Úr tollnr.: Svínakjöt, saltað, þurrkað eða reykt:
0210.1200 Slög og sneiðar af þeim, beinlaust 01.07.01 - 30.06.02
0
386
Tollnúmer:
0210.1901 Reykt - beinlaust 01.07.01 - 30.06.02
0
438
Úr tollnr.:
0210.1909 Annars - beinlaust 01.07.01 - 30.06.02
0
438
Kjöt af alifuglum - vöruliður 0207:
59.000
Kjöt og ætir hlutar af hænsnum, fryst:
0207.1200 Ekki skorið í hluta, fryst 01.07.01 - 30.06.02
0
198
0207.1401 Beinlaust 01.07.01 - 30.06.02
0
198
0207.1402 Lifur 01.07.01 - 30.06.02
0
272
0207.1409 Annað 01.07.01 - 30.06.02
0
198
Af kalkúnum:
0207.2500 Ekki skorið í hluta, fryst 01.07.01 - 30.06.02
0
272
0207.2701 Beinlaust 01.07.01 - 30.06.02
0
272
0207.2702 Lifur 01.07.01 - 30.06.02
0
272
0207.2709 Annað 01.07.01 - 30.06.02
0
272
Af öndum, gæsum eða perluhænsnum:
0207.3300 Ekki skorið í hluta, fryst 01.07.01 - 30.06.02
0
272
0207.3601 Beinlaust, (úrbeinað, fryst). 01.07.01 - 30.06.02
0
272
0207.3609 Annað, (skorið í hluta fryst). 01.07.01 - 30.06.02
0
272
Annað kjöt, fryst - vöruliður 0208:
12.000
0208.9006 Hreindýrakjöt, fryst 01.07.01 - 30.06.02
0
626
Úr tollnr.:
0208.9009 Annars – Strútakjöt og lynghænur, fryst 01.07.01 - 30.06.02
0
272

Tímabil það sem tilgreint er miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabils. Hafi vara hlotið bráðabirgðatollafgreiðslu skal þó miða við dagsetningu hennar.


3. gr.
Tollkvótum er úthlutað skv. auglýsingu landbúnaðarráðuneytisins þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar. Heimilt er að úthluta tollkvótum í einu lagi eða skipta úthlutun niður á gildistíma reglugerðarinnar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði 10. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt reglugerð og auglýsingum samkvæmt þeim um innflutning á sláturafurðum sem ekki hafa fengið hitameðferð.


4. gr.
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vörunnar.

Skulu tilboð ráða úthlutun. Þó skal að lágmarki og hámarki úthluta því magni sem hér greinir miðað við tímabil sem getið er um í 2. gr. í eftirtöldum vöruliðum sé um það sótt:

Að lágmarki:
Að hámarki:
vöruliður 0207.25xx og 0207.27xx
5.300 kg
8.200 kg



5. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt 53. gr. og 70. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum á henni skal farið að hætti opinberra mála.


6. gr.
Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 53. gr., 53. gr. A og 75. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi og gildir til 1. júlí 2002.


Landbúnaðarráðuneytinu, 1. júní 2001.

F. h. r.
Guðmundur B. Helgason.
Ólafur Friðriksson.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica