Landbúnaðarráðuneyti

601/1996

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 410/1990 um ullarmat. - Brottfallin

Stofnreglugerð:

Reglugerð

um breytingu á reglugerð nr. 410/1990 um ullarmat.

1.gr.

            Við 2.gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, er verður 2. mgr., svohljóðandi:

            Heimilt er að meta nýtingarhlutfall ullar 2,5 prósentustigum hærra eða lægra en tilgreint er í 1. mgr.

2.gr.

            Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 57/1990 um flokkun og mat á gærum og ull og öðlast þegar gildi.

Landbúnaðarráðuneytinu, 19. nóvember 1996.

F.h.r.

Guðmundur Sigþórsson.

Jón Höskuldsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica