Atvinnuvegaráðuneyti

1230/2025

Reglugerð um (46.) breytingu á reglugerð nr. 301/1995 um eftirlit með sáðvöru.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í III. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 188/2025 frá 19. september 2025, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3010 frá 29. nóvember 2024 um breytingu á tilskipunum ráðsins 2002/55/EB og 2002/57/EB og tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 93/61/EBE að því er varðar skráningu plöntuskaðvalda á fræjum og öðru plöntufjölgunarefni. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73 frá 20. nóvember 2025, bls. 65.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 21. nóvember 2025.

F. h. r.

Bryndís Hlöðversdóttir.

Svava Pétursdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 27. nóvember 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica