Matvælaráðuneyti

826/2023

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 651/2001 um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar. - Brottfallin

1. gr.

Á eftir 2. ml. 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi:

Þá getur Matvælastofnun einnig veitt leyfi til flutnings lamba með hugsanlega verndandi arfgerðir gegn riðu milli hjarða innan sýktra svæða, að því tilskyldu að hinar hugsanlega verndandi arfgerðir hafi verið samþykktar af stofnuninni og að lögð sé fram tímasett ræktunaráætlun um innleiðingu verndandi arfgerða fyrir viðkomandi hjörð.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a. í lögum um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 31. júlí 2023.

 

F. h. r.

Kolbeinn Árnason.

Margrét Björk Sigurðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica