Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

224/2017

Reglugerð um (81.) breytingu á reglugerð nr. 340/2001 um eftirlit með fóðri. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í II. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/842 frá 27. maí 2016 um breytingu á reglugerð (EB) að því er varðar nafn leyfishafa og viðskiptaheiti hníslalyfs. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 220/2016, frá 2. desember 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10, frá 16. febrúar 2017, bls. 73.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/895 frá 8. júní 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1290/2008 að því er varðar nafn leyfishafa fyrir blöndu með Lactobacillus rhamnosus (CNCM-I-3698) og Lactobacillus farciminis (CNCM-I-3699). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 221/2016, frá 2. desember 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10, frá 16. febrúar 2017, bls. 75.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/897 frá 8. júní 2016 um leyfi fyrir blöndu með Bacillus subtilis (C-3102) (DSM 15544) sem fóðuraukefni fyrir varphænur og skrautfiska (leyfishafi er Asahi Calpis Wellness Co. Ltd) og um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 1444/2006, (ESB) nr. 333/2010 og ESB nr. 184/2011 að því er varðar leyfishafa. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 221/2016, frá 2. desember 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10, frá 16. febrúar 2017, bls. 81.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. mars 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Iðunn Guðjónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica