Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

831/2012

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 665/2001 um viðbrögð við smitsjúkdómum.

1. gr.

1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Við smitsjúkdómum sem taldir eru upp í viðauka 1 A og 1 B skal brugðist eftir því sem við á hverju sinni, sbr. lög nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 10. október 2012.

F. h. r.

Kristján Skarphéðinsson.

Sigurgeir Þorgeirsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica