Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

366/2012

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 630/2007 um ólífrænan áburð.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XIV. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samn­inginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 11/2012 frá 11. febrúar 2012 öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 137/2011 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2003/2003 um áburð í því skyni að laga I. og IV. viðauka við hana að tækniframförum.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 137/2011 er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna áburðar­eftirlits sé framfylgt í samræmi við 3. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 24. apríl 2012.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Baldur P. Erlingsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica