Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

35/2009

Reglugerð um (14.) breytingu á reglugerð nr. 653/2001 um hámark dýralyfjaleifa í sláturafurðum, eggjum og mjólk. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 287/2007, frá 16. mars 2007, sem vísað er til í XIII. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 105/2007, frá 30. september 2007 og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 703/2007, frá 21. júní 2007, sem vísað er til í XIII. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 155/2007, frá 9. desember 2007, skulu öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, II. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans.

2. gr.

Ofangreindar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar eru birtar sem fylgiskjöl I og II við reglugerð þessa.

3. gr.

Með innleiðingu á reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 287/2007 og nr. 703/2007, breytast ákvæði í I. og II. viðauka reglugerðar nr. 653/2001 um hámark dýralyfjaleifa í sláturafurðum, eggjum og mjólk, þannig að:

A. Eftirfarandi efni er bætt við í 6. kafla II. viðauka:

6. Efni úr jurtaríkinu

Lyfjafræðilega virk(t) efni

Dýrategund

"Ginseng, stöðluð útdráttarefni úr því og blöndur með því

Allar tegundir sem gefa af sér afurðir til manneldis"


B. Eftirfarandi efnum og gildum er breytt í 1. kafla Sýkingarlyf, I. viðauka:

1.2. Sýklalyf

1.2.10. Amínóglýkósíð

Lyfjafræðilega virk(t) efni

Leifamerki

Dýrategund

Hámarksgildi leifa

Markvefur

"Tvívetnisstreptómýsín

Tvívetnisstreptómýsín

Öll jórturdýr

500 μg/kg 

Vöðvi

500 μg/kg 

Fita

500 μg/kg 

Lifur

1000 μg/kg 

Nýra

200 μg/kg 

Mjólk

Svín

500 μg/kg 

Vöðvi

500 μg/kg 

Húð og fita

500 μg/kg 

Lifur

1000 μg/kg 

Nýra

Kanínur

500 μg/kg 

Vöðvi

500 μg/kg 

Fita

500 μg/kg 

Lifur

1000 μg/kg 

Nýra

Streptómýsín

Streptómýsín

Öll jórturdýr

500 μg/kg 

Vöðvi

500 μg/kg 

Fita

500 μg/kg 

Lifur

1000 μg/kg 

Nýra

200 μg/kg 

Mjólk

Svín

500 μg/kg 

Vöðvi

500 μg/kg 

Húð og fita

500 μg/kg 

Lifur

1000 μg/kg 

Nýra

Kanínur

500 μg/kg 

Vöðvi

500 μg/kg 

Fita

500 μg/kg 

Lifur

1000 μg/kg 

Nýra



4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 96/1997 um eldi og heilbrigði sláturdýra, slátrun, vinnslu, heilbrigðisskoðun og gæðamat á sláturafurðum og lögum nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, ásamt síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 16. janúar 2009.

F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.

Baldur P. Erlingsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica