Landbúnaðarráðuneyti

876/2005

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 515/2005 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á nautgripa-, svína-, alifugla- og hreindýrakjöti. - Brottfallin

1. gr.

Með vísan til 5. gr. reglugerðar nr. 515/2005 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á nautgripa-, svína-, alifugla- og hreindýrakjöti, en í greininni er fjallað um endurúthlutun á tollkvótum, bætist við upptalningu í 2. gr. reglugerðarinnar eftirfarandi:

Vara
Tímabil
Vörumagn
Verðtollur
Magntollur
kg
%
kr./kg
Tollnúmer: Nautgripakjöt – Vöruliðir 0202 og 0210:
0202.3xxx Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst
15.10.05-30.06.06
10.000
0
487



2. gr.

Við upptalningu í 2. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi:

Vara
Tímabil
Vörumagn
Verðtollur
Magntollur
kg
%
kr./kg
Tollnúmer: Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst
0202.3001 Hakkað
15.10.05–30.06.06
35.000
0
153



3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Landbúnaðarráðuneytinu, 4. október 2005.


F. h. r.

Ólafur Friðriksson.
Atli Már Ingólfsson.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica