Landbúnaðarráðuneyti

704/2005

Reglugerð um greiðslu verðmiðlunargjalds af kindakjöti. - Brottfallin

1. gr.

Innheimta verðmiðlunargjalds.

Greiða skal verðmiðlunargjald af kindakjöti, sem ætlað er til sölu á innlendum markaði sem nemur kr. 5,00 á kg. Tekjum af gjaldinu skal varið til verkefna skv. 2. mgr. 19. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum.


Bændasamtök Íslands annast álagningu gjaldsins samkvæmt söluskýrslum afurðastöðva og innheimta það mánaðarlega hjá afurðastöðvunum. Selji framleiðandi búvörur sínar beint til neytanda ber honum að standa skil á gjöldum þessum til Bændasamtaka Íslands. Gjalddagi er 25. dagur næsta mánaðar eftir sölu og eindagi 30 dögum síðar.


Verðmiðlunargjald kindakjöts er aðfararhæft.

2. gr.

Skipting tekna milli verkefna.

Markaðsráð kindakjöts sem er samstarfsvettvangur bænda og sláturleyfishafa skal gera tillögu til landbúnaðarráðherra um skiptingu árlegra tekna af verðmiðlunargjaldi milli eftirfarandi verkefna fyrir 1. mars ár hvert.


Skipta skal tekjum af verðmiðlunargjaldi milli eftirfarandi verkefna:

1. Markaðs- og kynningarstarfsemi
2. Jöfnunar á flutningskostnaði kindakjöts
3. Jöfnunar á flutningskostnaði á sláturfé.



Verja skal að hámarki 65% af árlegum tekjum til markaðsstarfs, að hámarki 35% til jöfnunar á flutningskostnaði kindakjöts og að hámarki 20% til jöfnunar á flutningskostnaði sláturfjár.


Aldrei má ráðstafa meiru en árstekjum af verðmiðlunargjaldi samanlagt til ofangreindra verkefna.


Beina skal umsóknum um styrki til Bændasamtaka Íslands sem hafa umsjón með greiðslu gjaldsins. Umsóknum um styrki til jöfnunar á flutningskostnaði skulu fylgja gögn sem staðfesta magn og vegalengd.


3. gr.

Styrkir til markaðs- og kynningarmála.

Markaðsráð kindakjöts metur þörfina fyrir markaðs- og kynningarstarfsemi hverju sinni. Við mat og framkvæmd á verkefnum skal m.a. gætt eftirfarandi:


1. Velja skal að öðru jöfnu verkefni sem nýtast öllum afurðastöðvum óháð legu þeirra og stærð.
2. Nýta skal hagkvæmni stærðar til þess að ná niður kostnaði við hvert einstakt verkefni.


4. gr.

Jöfnun flutningskostnaðar kindakjöts.

Reikna skal hámark flutningsjöfnunar frá sláturstað til aðalmarkaðar þannig:

1. Sláturleyfishafi ber allan kostnað við flutning kindakjöts fyrstu 100 km ef flutt er landveg og hliðstætt hlutfall ef flutt er sjóveg. Lestun og losun er innifalin í þessum kostnaði.
2. Fyrir hvern ekinn km sem flutt er umfram 100 km greiðist flutningsjöfnun, kr. 1,35 pr. kg kjöts að meðaltali á hverja 100 km. Sama fjárhæð greiðist þótt flutt sé sjóleiðis milli sömu staða.
3. Fari styrkþörf samkvæmt þessari grein fram úr ráðstöfunarfé eftir skiptingu sem ákveðin hefur verið skv. 2. gr., skal lækka styrki hlutfallslega jafnt til allra aðila.


5. gr.

Jöfnun flutningskostnaðar á sláturfé.

Reikna skal flutningsjöfnun frá framleiðendum til afurðastöðva á eftirfarandi hátt:

1. Flutningsjöfnun greiðist á sláturfé sem kemur af lögbýlum sem eru í 200 km fjarlægð eða meira frá næsta sláturhúsi. Þó skal flutningsjöfnun greiðast að næsta sláturhúsi sem hefur leyfi til útflutnings kjósi bóndi að slátra þar.
2. Flutningsjöfnunarframlag er að hámarki 1 kr. á hvern km sem hverri kind er ekið til slátrunar.
3. Til að fá greidda flutningsjöfnun skal sláturleyfishafi leggja fram yfirlit yfir fjölda sláturfjár sem flutt hefur verið frá hverju lögbýli og sótt er um flutningsjöfnun fyrir, ásamt dagsetningu flutnings. Umsókn um flutningsjöfnun skal berast innan þriggja mánaða frá því að flutningur átti sér stað.


6. gr.

Nægi fjármunir þeir sem ætlaðir eru til flutningsjöfnunar samkvæmt reglugerð þessari ekki til að greiða að fullu þá upphæð sem umsóknir nema í heild, skal skerða öll framlög hlutfallslega jafnt.





7. gr.

Með mál út af brotum skal farið sem opinber mál. Varða brotin sektum.

8. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 27. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 598/2000 um greiðslu verðmiðlunargjalds af kindakjöti.

Landbúnaðarráðuneytinu, 14. júlí 2005.

F. h. r.

Ólafur Friðriksson.
Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica