Reglugerð þessi gildir um vænhæfismörk við stjórn ökutækis vegna neyslu ávísunarskyldra lyfja sem innihalda efni sem tilgreind eru í viðauka I við reglugerð þessa og mælast í blóði ökumanns, sbr. 6. mgr. 48. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019.
Með hugtakinu vanhæfismörk er átt við þegar styrkur efna sem tilgreind eru í viðauka I við reglugerð þessa samsvarar vínandamagni í blóði yfir 0,5‰.
Reglugerðin tekur eingöngu til lyfja sem ökumenn neyta á grundvelli ávísunar læknis með gilt lækningaleyfi hér á landi og í samræmi við notkunarfyrirmæli hans.
Reglugerð þessi kveður ekki á um vanhæfismörk vegna neyslu efna, m.a. lyfja, umfram það sem greinir í viðauka I.
Heimilt er að víkja frá ákvæðum í viðauka I ef veigamikil rök mæla með því.
Ökumaður telst óhæfur til að stjórna ökutæki ef styrkleiki efnis í blóði mælist yfir vanhæfismörkum samkvæmt viðauka I eða ef fleiri en eitt tilgreint efni með samverkandi áhrif mælast í blóði hans.
Ökumaður, sem uppfyllir skilyrði reglugerðar þessarar, skal ekki beittur viðurlögum ef styrkur efna í blóði hans mælist undir vanhæfismörkum og hann sýnir fram á að neysla lyfs sem um ræðir sé í samræmi við ávísun læknis og notkunarfyrirmæli, sbr. 3. mgr. 1. gr. reglugerðar þessarar.
Niðurstaða um hvort blóðsýni innihaldi efni yfir vanhæfismörkum samkvæmt viðauka I grundvallast á mælingu á styrk efnis í blóði ökumanns.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 6. mgr. 48. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, tekur þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 22. september 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 7. október 2026