Markmið reglugerðarinnar er að auka umferðaröryggi vegfarenda með því að greiða fyrir upplýsingaskiptum yfir landamæri aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins í tengslum við umferðarlagabrot, og þar með greiða fyrir beitingu viðurlaga, þegar brotin eru framin við akstur ökutækis sem er skráð í öðru aðildarríki en því þar sem brotið átti sér stað.
Reglugerðin tekur til eftirfarandi umferðarlagabrota:
Samgöngustofa er landsbundinn tengiliður, sbr. l-lið 3. gr. og 4. gr. tilskipunar (ESB) 2015/413, og veitir upplýsingar um skráð ökutæki í ökutækjaskrá stofnunarinnar komi fram beiðni um það frá til þess bærum aðila.
Þrátt fyrir 1. mgr. fyllir ríkislögreglustjóri út beiðni og framkvæmir leit samkvæmt 3. mgr. 4. gr. tilskipunar (ESB) 2015/413. Ríkislögreglustjóri heldur utan um þau gögn sem tengjast beiðnum um upplýsingar sem sendar eru til aðildarríkja.
Ríkislögreglustjóri og viðeigandi lögregluembætti fara með málsmeðferð og eftirfylgni vegna umferðarlagabrota sem tengjast umferðaröryggi í samræmi við 5. gr. tilskipunar (ESB) 2015/413.
Samgöngustofa skal útbúa skýrslu og senda til Eftirlitsstofnunar EFTA í samræmi við 6. gr. tilskipunar (ESB) 2015/413. Ríkislögreglustjóri skal veita Samgöngustofu nauðsynlegar upplýsingar fyrir skýrslugerðina á því formi að taka megi þær beint upp í skýrsluna.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi:
Reglugerð þessi er sett með heimild í 5. mgr. 2. gr. og 9. mgr. 4. gr. laga um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála, nr. 119/2012, og 5. mgr. 72. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 7. september 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 8. september 2026