Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 3. gr. er Fiskistofu heimilt á strandveiðivertíðinni 2026 að synja ekki umsókn um strandveiðileyfi þótt skilyrði um haffærisskírteini séu ekki uppfyllt við umsókn skv. 1. mgr. 3. gr. Skal leyfi hins vegar ekki veitt fyrr en skilyrði um haffærisskírteini eru uppfyllt. Önnur skilyrði reglugerðarinnar skulu að öðru leyti vera uppfyllt.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. gr. a og 2. mgr. 17. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 8. apríl 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Aðalsteinn Þorsteinsson.
B deild - Útgáfudagur: 9. apríl 2026