42/2026
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.
1. gr.
Við 6. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1111 frá 10. apríl 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1178/2011, framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 923/2012, reglugerð (ESB) nr. 965/2012 og framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/373 að því er varðar að setja kröfur um starfrækslu mannaðra loftfara með getu til að lenda og hefja flug lóðrétt, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 142/2025 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 75 frá 27. nóvember 2025, bls. 14-72.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 72. gr., 83. gr., 93. gr. og 124. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 12. janúar 2026.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
B deild - Útgáfudagur: 26. janúar 2026