Innviðaráðuneyti

34/2026

Reglugerð um kröfur fyrir lögbær yfirvöld og stjórnsýslumeðferðir varðandi vottun, eftirlit og framfylgd í tengslum við áframhaldandi lofthæfi vottaðra, ómannaðra loftfarskerfa.

1. gr.Markmið og efni.

Markmið reglugerðar þessarar er að kveða á um reglur um viðhald og öryggiseftirlit ómannaðra loftfarskerfa. Megináherslan er að tryggja að kerfunum sé haldið í öruggu rekstrarástandi, að þau uppfylli viðeigandi öryggiskröfur og stuðla að hámarksöryggi í rekstri kerfanna.

Einnig eru settar fram reglur og verklagsreglur sem lögbær yfirvöld eiga að beita við mat á því hvort kröfum um áframhaldandi lofthæfi, sem mælt er fyrir um í reglugerð (ESB) 2024/1107, sé hlítt.

2. gr.Lögbært yfirvald að því er varðar vottun, eftirlit og framfylgd.

Lögbært yfirvald samkvæmt reglugerð þessari er Samgöngustofa. Stofnunin annast tilkynningar til Flugöryggisstofnunar Evrópu og Eftirlitsstofnunar EFTA á grundvelli reglugerðarinnar.

3. gr.Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1107 frá 13. mars 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1139 með því að mæla fyrir um ítarlegar reglur um áframhaldandi lofthæfi vottaðra ómannaðra loftfarskerfa og íhluta þeirra og um samþykki fyrir fyrirtækjum og starfsfólki á þessu sviði, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 148/2025 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES- viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63 frá 9. október 2025, bls. 163-199.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1109 frá 10. apríl 2024 um reglur um beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1139 að því er varðar kröfur fyrir lögbær yfirvöld og stjórnsýslumeðferðir varðandi vottun, eftirlit og framfylgd í tengslum við áframhaldandi lofthæfi vottaðra, ómannaðra loftfarskerfa og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2023/203, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 148/2025 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63 frá 9. október 2025, bls. 200-216.

4. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 20. gr, 72. gr., 83. gr., 93. gr., 152. gr., 167. gr. og 188. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022, öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 8. janúar 2026.

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 23. janúar 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica