Innviðaráðuneyti

33/2026

Reglugerð um ákvæði um loftfarsbúnað, sem krafist er við notkun samevrópska loftrýmisins og um starfrækslureglur í tengslum við notkun samevrópskra loftrýmisins.

1. gr.Efni og gildissvið.

Í þessari reglugerð er mælt fyrir um starfrækslureglur í tengslum við notkun loftrýmis og kröfur sem gilda um loftfarsbúnað sem krafist er vegna öruggrar og samræmdrar starfrækslu innan samevrópska loftrýmisins.

Reglugerðin gildir um flugrekendur loftfara, sem um getur í i- og ii-lið b-liðar 1. mgr. 2. gr. og c-lið 1. mgr. 2. gr. reglugerðar (ESB) 2018/1139, sem starfrækja flug í tengslum við almenna flugumferð og fljúga inn í samevrópskt loftrými, innan þess eða út úr því.

2. gr.Lögbært yfirvald.

Samgöngustofa er lögbært yfirvald samkvæmt reglugerð þessari.

3. gr.Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1770 frá 12. september 2023 um ákvæði um loftfarsbúnað, sem krafist er við notkun samevrópska loftrýmisins, og um starfrækslureglur í tengslum við notkun samevrópska loftrýmisins og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 29/2009 og framkvæmdarreglugerða (ESB) nr. 1206/2011, (ESB) nr. 1207/2011 og (ESB) nr. 1079/2012, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 161/2025 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 4. september 2025, bls. 494-503.

4. gr.Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 188. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022, öðlast þegar gildi. Á sama tíma falla úr gildi reglugerð nr. 340/2015 um gagnatengingaþjónustu í samevrópska loftrýminu, reglugerð nr. 1127/2014 um kröfur um afköst og rekstrarsamhæfi kögunar í samevrópska loftrýminu og reglugerð nr. 732/2014 um kröfur um bil milli talrása í samevrópska loftrýminu.

Innviðaráðuneytinu, 8. janúar 2026.

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 23. janúar 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica