Innviðaráðuneyti

32/2026

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 926/2015 um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði.

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/111 frá 23. janúar 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar áframhaldandi lofthæfi loftfara með raf- og tvinnhreyfla og önnur óhefðbundin loftför, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2025 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 75 frá 27. nóvember 2025, bls. 73-112.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 72. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 9. janúar 2026.

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 23. janúar 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica