Innviðaráðuneyti

588/2025

Reglugerð um breytingu á reglugerð um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit, nr. 605/2010.

1. gr.

Við 2. mgr. 56. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1012 frá 7. apríl 2022 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 561/2006 að því er varðar að setja viðmiðanir um þjónustu- og öryggisstig öruggra og verndaðra bílastæðasvæða og verklagsreglur um vottun þeirra, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 265/2024, 6. desember 2024, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 20. febrúar 2025, bls. 964-974.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 54. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 28. maí 2025.

 

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Gauti Daðason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica