Innviðaráðuneyti

374/2025

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 75/2016 um kröfur og stjórnsýslumeðferð er varða flugvelli samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008.

1. gr.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/405 frá 30. janúar 2024 um breyt­ingu á reglugerð (ESB) nr. 139/2014 að því er varðar notkun merkja þegar þráðlaus fjarskipti bregðast, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 245/2024 frá 25. október 2024. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85 frá 21. nóvember 2024, bls. 598-600.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 152. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, og öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 21. mars 2025.

 

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica