1652/2024
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 359/2010, um meðferð krafna Íbúðalánasjóðs sem glatað hafa veðtryggingu.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað fjárhæðarinnar "8.725.000 kr." í 1. tölul. kemur: 9.101.000 kr.
- Í stað fjárhæðanna "4.864.000 kr.", "5.735.000 kr." og "765.000" í 2. tölul. kemur: 5.074.000 kr.; 5.982.000 kr.; og 798.000 kr.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 8. mgr. 47. og 50. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, öðlast gildi 1. janúar 2025.
Innviðaráðuneytinu, 20. desember 2024.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.