Fara beint í efnið

Prentað þann 7. maí 2024

Breytingareglugerð

1677/2023

Reglugerð um breytingu á byggingarreglugerð nr. 112/2012.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2.3.6. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "Hún skal vera í samræmi við" í 2. málsl. 1. mgr. kemur: Hún skal ekki vera í ósamræmi við.
  2. Við 1. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Smádreifistöðvar fyrir raforkudreifingu, dæluhús hita-, vatns- og fráveitu og önnur lítil hús veitukerfa sem eru að hámarki 15 m² og mesta hæð þaks er 2,5 m mælt frá yfirborði jarðvegs.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 1. mgr. 60. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010, öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 20. desember 2023.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Hermann Sæmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.