Fara beint í efnið

Prentað þann 3. maí 2024

Breytingareglugerð

1596/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1200/2016, um húsnæðisbætur, með síðari breytingum.

1. gr.

Tafla í 13. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Fjöldi heimilismanna Grunnfjárhæð húsnæðisbóta
1 487.601 kr.
2 644.892 kr.
3 754.995 kr.
4 eða fleiri 817.912 kr.

2. gr.

Tafla í 14. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Fjöldi heimilismanna Frítekjumörk m.v. árstekjur
1 5.257.544 kr.
2 6.953.525 kr.
3 8.140.713 kr.
4 eða fleiri 8.819.106 kr.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 5. mgr. 16. gr. og 4. mgr. 17. gr., sbr. 3. og 4. tölul. 1. mgr. og 2. mgr. 30. gr. laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, öðlast gildi 1. janúar 2023 og gildir um húsnæðisbætur sem greiddar eru vegna leigu íbúðarhúsnæðis frá og með þeim degi.

Innviðaráðuneytinu, 22. desember 2022.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ingilín Kristmannsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.