Fara beint í efnið

Prentað þann 3. maí 2024

Breytingareglugerð

1297/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd.

1. gr.

Við 1. mgr. 52. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/421 frá 14. mars 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1998 um ítarlegar ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 220/2022 frá 8. júlí 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53, frá 11. ágúst 2022, bls. 45-48.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 167. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 29. nóvember 2022.

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Valgerður B. Eggertsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.