Fara beint í efnið

Prentað þann 24. apríl 2024

Breytingareglugerð

1253/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 989/2016, um skipsbúnað, með síðari breytingum.

1. gr.

B-liður 1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1157 frá 4. júlí 2022 um hönnunar-, smíða- og nothæfiskröfur sem og prófunarstaðla fyrir búnað um borð í skipum og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/1158, skv. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 227/2022 frá 8. júlí 2022. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 70, frá 27. október 2022 bls. 316.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. 24. gr. skipalaga nr. 66/2021 og öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 17. nóvember 2022.

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Eggert Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.