Innviðaráðuneyti

1248/2022

Reglugerð um breytingu á hafnarreglugerð fyrir Faxaflóahafnir sf., nr. 798/2009.

1. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Stjórn hafnanna.

Eigandi hafnanna er Faxaflóahafnir sf. sem er sameignarfélag í eigu Reykjavíkurborgar, Borgar­byggðar, Akraneskaupstaðar, Skorradalshrepps og Hvalfjarðarsveitar. Fyrirtækið fellur undir skil­grein­ingu VI. kafla hafnalaga nr. 61/2003.

Æðsta vald í málefnum Faxaflóahafna sf. er í höndum aðalfundar og lögmætra eigendafunda sam­kvæmt samþykktum félagsins. Stjórn sameignarfélagsins, sem nefnist hafnarstjórn, fer með mál­efni félagsins á milli aðalfunda. Hafnarstjórn skipa sjö fulltrúar og jafnmargir til vara. Skipting sæta í stjórn félagsins fer eftir ákvæðum gildandi sameignarfélagssamnings Faxaflóahafna sf.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 4. gr. hafnalaga nr. 61/2003 og öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 10. nóvember 2022.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica