Fara beint í efnið

Prentað þann 8. maí 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 5. mars 2024

583/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 926/2015 um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði.

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætast nýir stafliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1383 frá 8. júlí 2019 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar öryggisstjórnunarkerfi fyrirtækja sem annast stjórnun á áframhaldandi lofthæfi og tilslakanir fyrir loftför í almannaflugi að því er varðar viðhald og stjórnun á áframhaldandi lofthæfi.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/270 frá 25. febrúar 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar umbreytingarráðstafanir fyrir fyrirtæki sem annast áframhaldandi lofthæfi fyrir almannaflug ásamt stjórnun á áframhaldandi lofthæfi og um leiðréttingu á þeirri reglugerð.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1159 frá 5. ágúst 2020 um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1321/2014 og (ESB) 2015/640 að því er varðar innleiðingu nýrra viðbótarlofthæfikrafna.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/700 frá 26. mars 2021 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar viðhaldsgögn og ísetningu tiltekinna loftfarsíhluta meðan á viðhaldi stendur.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerðir (ESB) 2019/1383, (ESB) 2020/270, (ESB) 2020/1159 og (ESB) 2021/700, sem nefndar eru í 1. gr., eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 5. maí 2022.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.