Fara beint í efnið

Prentað þann 8. maí 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 5. mars 2024

582/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.

1. gr.

Við 6. gr. reglugerðarinnar bætast nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/133 frá 28. janúar 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/640 að því er varðar innleiðingu á nýjum viðbótarlofthæfiforskriftum.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1384 frá 24. júlí 2019 um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 965/2012 og (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar notkun loftfara sem eru skráð á flugrekandaskírteini, í starfrækslu sem er ekki í ábataskyni og í sérstakri starfrækslu, ákvörðun rekstrarlegra krafna í tengslum við framkvæmd reynsluflugs vegna viðhalds, ákvörðun reglna um starfrækslu sem er ekki í ábataskyni þar sem öryggis- og þjónustuliðum um borð hefur verið fækkað og innleiðingu ritstjórnarlegra uppfærslna varðandi kröfur um flugrekstur.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1387 frá 1. ágúst 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar kröfur um útreikninga á afkastagetu flugvélar við lendingu og viðmiðin til að meta ástand yfirborðs flugbrautar, uppfærslu á tilteknum búnaði og kröfum sem varða öryggi loftfara sem og starfrækslu án þess að hafa undir höndum fjarflugsleyfi.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1176 frá 7. ágúst 2020 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1387 að því er varðar frestun á framkvæmd tiltekinna ráðstafana í tengslum við COVID-19-heimsfaraldurinn.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/97 frá 28. janúar 2021 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) 2015/640 að því er varðar innleiðingu nýrra viðbótarlofthæfikrafna.

2. gr.

Reglugerðir (ESB) 2019/133, (ESB) 2019/1384, (ESB) 2019/1387, (ESB) 2020/1176 og (ESB) 2021/97, sem nefndar eru í 1. gr., eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. mgr. 28. gr., 28. gr. e, 28. gr. f, 80. gr. og 85. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 5. maí 2022.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.