Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 8. feb. 2024

1593/2022

Reglugerð um framlög til að mæta kostnaði sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna á árinu 2023.

1. gr.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga ráðstafar framlagi til einstakra sveitarfélaga til að mæta kostnaði vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna á árunum 2022-2024, sbr. XXV. ákvæði til bráðabirgða í lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.

Framlög til einstakra sveitarfélaga skulu ekki vera hærri en umframkostnaður sveitarfélagsins af framkvæmd laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna að frádregnum ávinningi sem sveitarfélagið fær af þeim.

2. gr.

Við úthlutun framlagsins til sveitarfélaga árið 2023, skal hlutfallsskipta fjármagni til ráðstöfunar á grundvelli eftirfarandi breytna fyrir hvert sveitarfélag sem allar hafa jafnt vægi, og byggja á upplýsingum frá Hagstofu Íslands:

  1. Fjöldi barna 1. janúar 2022.
  2. Meðaltal barna með stuðning í grunnskólum skólaárin 2018/2019, 2019/2020 og 2020/2021 og fjöldi barna með stuðning í leikskólum árin 2019, 2020 og 2021.
  3. Fjöldi barna á heimilum með undir 60% af miðgildi ráðstöfunartekna árið 2021.
  4. Fjöldi innflytjenda af fyrstu og annarri kynslóð 1. janúar 2022.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli XXV. ákvæðis til bráðabirgða og 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, með síðari breytingum, tekur gildi 1. janúar 2023. Við gildistöku hennar fellur úr gildi reglugerð nr. 1455/2021 um framlög til að mæta kostnaði sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna á árinu 2022.

Innviðaráðuneytinu, 21. desember 2022.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.