Fara beint í efnið

Prentað þann 28. apríl 2024

Stofnreglugerð

144/2024

Reglugerð um framlög til að mæta kostnaði sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna á árinu 2024.

1. gr.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga ráðstafar framlagi til einstakra sveitarfélaga til að mæta kostnaði vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna á árunum 2022-2024, sbr. XXV. ákvæði til bráðabirgða í lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.

Framlög til einstakra sveitarfélaga skulu ekki vera hærri en umframkostnaður sveitarfélagsins af framkvæmd laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna að frádregnum ávinningi sem sveitarfélagið fær af þeim.

2. gr.

Við úthlutun framlagsins til sveitarfélaga árið 2024, skal hlutfallsskipta fjármagni til ráðstöfunar á grundvelli eftirfarandi breytna fyrir hvert sveitarfélag sem allar hafa jafnt vægi, og byggja á upplýsingum frá Hagstofu Íslands:

  1. Fjöldi barna 1. janúar 2023.
  2. Meðaltal barna með stuðning í grunnskólum skólaárin 2019/2020, 2020/2021 og 2021/2022 og fjöldi barna með stuðning í leikskólum árin 2020, 2021 og 2022.
  3. Fjöldi barna á heimilum með undir 60% af miðgildi ráðstöfunartekna árið 2022.
  4. Fjöldi innflytjenda af fyrstu og annarri kynslóð 1. janúar 2023.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli XXV. ákvæðis til bráðabirgða og 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, tekur þegar gildi. Við gildistöku hennar fellur úr gildi reglugerð nr. 1593/2022 um framlög til að mæta kostnaði sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna á árinu 2023.

Innviðaráðuneytinu, 24. janúar 2024.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Hermann Sæmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.