Samgönguráðuneyti

588/2006

Reglugerð um stjórn fjarskiptasjóðs og verkefnisstjórnar um framkvæmd fjarskiptaáætlunar. - Brottfallin

1. gr.
Hlutverk fjarskiptasjóðs.

Hlutverk fjarskiptasjóðs er að að stuðla að uppbyggingu á sviði fjarskiptamála á grundvelli fjarskiptaáætlunar. Stjórn sjóðsins úthlutar fjármagni til verkefna sem miða að uppbyggingu stofnkerfa fjarskipta, verkefna sem stuðla að öryggi og samkeppnishæfni þjóðfélagsins á sviði fjarskipta og annarra verkefna, enda sé kveðið á um þau í fjarskiptaáætlun, og ætla má að ekki verði í þau ráðist á markaðsforsendum.

2. gr.
Stjórn.

Samgönguráðherra skipar fimm menn í stjórn fjarskiptasjóðs, þar af formann og varaformann, auk varamanna til þriggja ára í senn en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér störfum. Stjórn fjarskiptasjóðs er jafnframt verkefnastjórn fjarskiptaáætlunar.

Formaður kemur fram fyrir hönd stjórnar við kynningu ákvarðana hennar og mála sem hún hefur til meðferðar. Stjórnarmenn skulu vísa fyrirspurnum fjölmiðla til hans. Formaður undirritar samninga sem fjarskiptasjóður gerir.

3. gr.
Fundarboðun o.fl.

Formaður stjórnar boðar til stjórnarfunda eftir þörfum en þó ekki sjaldnar en á tveggja mánaða fresti. Heimilt er að boða til funda með tölvupósti á tölvupóstfang sem stjórnarmenn tiltaka. Fundi skal boða með þriggja sólarhringa fyrirvara sé þess nokkur kostur. Formaður stýrir fundum samkvæmt dagskrá og undirbýr þá ásamt starfsmanni sem ráðuneytið leggur til. Stjórnarfundi skal ætíð halda ef einn eða fleiri stjórnarmenn óska þess eða telji formaður þess þörf. Ef ósk berst frá stjórnarmanni um fund skal boðað til hans innan viku frá því að ósk berst formanni og skal fundurinn haldinn svo fljótt sem verða má.

Fundir skulu að öllu jöfnu haldnir í samgönguráðuneytinu. Fundur er lögmætur ef réttilega er til hans boðað og meirihluti stjórnarmanna sækir hann. Hver stjórnarmaður fer með eitt atkvæði á fundum. Afl atkvæða ræður úrslitum við afgreiðslu máls. Falli atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns.

Meiriháttar ákvarðanir má ekki taka nema allir stjórnarmenn hafi haft tök á því að fjalla um málið, ef þess er nokkur kostur. Óski stjórnarmaður eftir frestun á afgreiðslu máls til annars fundar er rétt að verða við þeirri beiðni, enda þoli málið slíka bið.

Stjórn er heimilt að óska eftir því að forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar sitji stjórnarfundi og taki þátt í umræðum.

4. gr.
Vanhæfi.

Stjórnarmenn skulu ekki taka þátt í meðferð máls er varðar viðskipti þeirra sjálfra eða fyrirtækja sem þeir eiga hlut í, sitja í stjórn hjá, eru fyrirsvarsmenn fyrir eða eiga að öðru leyti verulegra hagsmuna að gæta í. Sama gildir um þátttöku stjórnarmanna í meðferð máls er varðar aðila sem eru þeim tengdir, persónulega eða fjárhagslega.

5. gr.
Fundargerðir.

Halda skal fundargerð um það sem gerist á stjórnarfundum sem skal staðfest í upphafi næsta fundar og undirrituð af formanni. Bóka skal hvaða stjórnarmenn eru mættir, hvað sé á dagskrá fundarins og hvaða ákvarðanir hafa verið teknar. Þeir sem greiða atkvæði gegn ákvörðunum eiga rétt á því að fá stutta lýsingu á afstöðu sinni bókaða í fundargerð og hana skal svo fljótt sem auðið er senda til nefndarmanna og samgönguráðherra. Stjórnarmenn eru bundnir þagnarskyldu um það sem fram fer á stjórnarfundum.

6. gr.
Tekjur.

Tekjur fjarskiptasjóðs eru framlag úr ríkissjóði samkvæmt ákvörðun Alþingis og tekjur af ávöxtun fjármuna sjóðsins.

7. gr.
Verksvið og verkefni stjórnar fjarskiptasjóðs.

Stjórn fjarskiptasjóðs skal hafa yfirumsjón með fjármálum sjóðsins í samræmi við hlutverk hans. Varsla hans og dagleg umsýsla heyrir undir samgönguráðuneytið.

Stjórnin skal m.a. annast eftirfarandi verkefni:

  • annast fjárreiður fjarskiptasjóðs í samráði við samgönguráðuneyti,
  • kveða á um ávöxtun fjármuna sjóðsins,
  • ákveða framlög úr sjóðnum í samræmi við hlutverk sitt og fjarskiptaáætlun að undangengnu útboði,
  • semja greiðsluáætlun innan heimilda fjárlaga,
  • ákveða útboð,
  • samþykkja tilboð á grundvelli útboða,
  • kveða á um faglegt eftirlit með verkefnum og framvindu þeirra,
  • kalla eftir greinargerðum um framvindu verkefna og ráðstöfun fjár,
  • ákveða tilfærslu fjármuna milli ára og/eða einstakra verkefna ef nauðsyn krefur,
  • láta færa reikninga sjóðsins,
  • setja nánari reglur, ef þörf krefur m.a. um framkvæmd einstakra verkefna, upplýsingagjöf um framvindu og ráðstöfun fjár vegna einstakra verkefna,
  • svara erindum sem sjóðnum berast,
  • skila skýrslu um starfsemi sjóðsins til samgönguráðherra sem leggur hana fyrir Alþingi á vorþingi.

Póst- og fjarskiptastofnun sér um samningagerð í kjölfar útboðs vegna framkvæmda einstakra verkefna, í samræmi við ákvarðanir stjórnar sem undirritar samninga um framkvæmdina.

8. gr.
Verksvið verkefnistjórnar um framkvæmd fjarskiptaáætlunar.

Verkefnisstjórn um framkvæmd fjarskiptaáætlunar skal hafa yfirumsjón með framkvæmd áætlunarinnar fyrir hönd samgönguráðherra.

Verkefnisstjórnin skal m.a. annast eftirfarandi:

  • útfæra einstök verkefni er undir samgönguráðuneytið heyra og skipa ábyrgðaraðila þeirra,
  • ákveða forgangsröðun verkefna með hliðsjón af ákvörðunum ríkisstjórnarinnar,
  • fjalla um kostnaðaráætlanir verkefna,
  • samþykkja útfærslu og verkáætlanir einstakra verkefna,
  • svara erindum sem verkefnistjórninni berast,
  • kynna ákvarðanir fyrir ráðherra,
  • vinna með tengiliðum ábyrgðaraðila,
  • undirbúa skýrslu um framgang fjarskiptaáætlunar til samgönguráðherra sem leggur hana fyrir Alþingi á vorþingi.

Póst- og fjarskiptastofnun annast undirbúning framkvæmda einstakra verkefna fjarskiptaáætlunar í samræmi við ákvarðanir verkefnisstjórnarinnar.

9. gr.
Umsýsla og eftirlit.

Þeir sem fá úthlutað fé úr fjarskiptasjóði skulu gera grein fyrir framvindu verkefna og ráðstöfun fjár.

Póst- og fjarskiptastofnun hefur eftirlit með framkvæmd verkefna sjóðsins sem njóta styrkja. Póst- og fjarskiptastofnun skal árlega skila stjórn fjarskiptasjóðs greinargerð um stöðu einstakra verkefna eða oftar sé þess sérstaklega krafist. Um framkvæmd útboða og eftirlit fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum laga nr. 81/2003 um fjarskipti, laga nr. 65/1993 um útboð og laga nr. 94/2001 um opinber innkaup.

10. gr.
Kostnaður.

Fjarskiptasjóður ber allan kostnað af starfsemi sinni og allan kostnað Póst- og fjarskiptastofnunar af starfsemi sem tengist verkefnum sjóðsins. Reikningar sem berast fjarskiptasjóði skulu samþykktir af starfsmanni sem ráðuneytið leggur til.

11. gr.
Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 8. gr. laga nr. 132/2005 um fjarskiptasjóð og öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 27. júní 2006.

Sturla Böðvarsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica